Auglýsing

Klukkan

Leit

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

7. febrúar

07. febrúar 2008 klukkan 23:31
Það er aldeilis að febrúar heilsar okkur með hvelli, ja eins og mest allur janúar mánuður hefur gert.  Það er alveg merkilegt að það skuli geta kyngt svona niður Brosandi.  Við; gamla settið vorum að tala um það í morgun að þetta væri orðið eins og þegar við vorum að alast upp; almennilegur snjór.  Ekki einhver smáföl eins og undanfarin ár.  Fólk á auðvitað mis auðvelt með að komast um, fólk hefur litla sem enga reynslu í því að keyra í snjó.  Ég og loðna stelpan brugðum okkur í smá göngutúr áðan, ég óð snjóinn nánast í klof meðan hún fór létt yfir þetta og hnusaði hnusaði nánast í hverju spori Svalur.  Merkilegt hvað það er gott að hreyfa sig í fannferginu, maður notar einhvern veginn allt aðra vöðva en þegar maður gengur á auðu.  Maður verður líka svo vel þreyttur, æi vitiði ekki hvað ég á við? Ullandi 
Birna átti afmæli á sunnudag, Sigrún mágkona á mánudag og líka hún Þórey mín Dögg, Kristján bróðir í gær.  Til lukku þið öll Koss.  Því má svo bæta við að ef hann Kristján afi minn (föðurafinn minn) væri á lífi; yrði hann 100 ára á morgun.  Af því tilefni ætla systkini pabba og fylgifiskar þeirra að hittast á laugardag og hafa gaman saman.
Reyndar verður Guðrún Kristín vinkona hans Róberts 12 ára á morgun, engin smá afmælishrina Brosandi.

Meira síðar, fariði varlega í fannferginu,
knús, SA
Sigrún Arna Hafsteinsdóttir
1 athugasemd

Ilmurinn úr eldhúsinu er svo lokkandi....

24. janúar 2008 klukkan 21:43
Já það mætti halda að það væri aftur komin Þorláksmessa; korteri síðan þessi síðasta var.  Af hverju? Jú (ein táknmálsleg Ullandi) ég er að sjóða hangikjöt og ilmurinn úr eldhúsinu er yndislegur og ekki spillir hundslappadrífan úti fyrir, fyrir.  Við; familían, ætlum ásamt vinafjölskyldu okkar að hafa Þorrablót hér á morgun eins og við höfum gert undanfarin ár.  Við erum nú ekkert voðalega þjóðleg í þessu, jú reyndar erum við með ekta íslenskan Þorramat; hangijöt, laufabrauð, svið- og sviðasultu, harðfisk, síld og rúgbrauð, slátur, rófustöppu og kartöflumús, en ekkert af þessu súra eða svoleiðis.  Ég hef heldur aldrei komist upp á lag með að borða bringukolla, punga eða neitt svoleiðis, enda á maður bara að njóta þess sem maður vill og ekki er nú verra að vera í góðum félagsskap.

Talandi um félagsskap.  Um daginn var ég eitthvað að hugsa um það fólk sem verður manni samferða í gegnum lífið, margt fólk sem maður kynnist og hefur mismikil áhrif á mann og líf manns.  Sumum binst maður sterkum böndum, öðrum alls ekki. 
Skemmtilegar pælingar Saklaus.

Ég nenni alls ekki að tala um ástandið í borgarmálunum í Reykjavík og hana nú.

Jæja, látið ykkur ekki verða kalt, njótið Þorrans Koss.

Meira síðar,
SA
Sigrún Arna Hafsteinsdóttir
4 athugasemdir

9. janúar

09. janúar 2008 klukkan 19:33

Ef hún Laufey móðuramma mín væri á lífi, ætti hún 99 ára afmæli í dag, góður dagur þetta Brosandi.  Ef ég þekki hana systur mína rétt þá tekur hún jólagardínurnar niður hjá sér á morgun.  Hún hefur nefnilega haft það fyrir sið að setja þær upp áður en afmælisdagur Gróu ömmu (föðurömmu okkar) rennur upp en hún átti afmæli 14. desember og svo tekur hún þær niður þegar Laufeyjar ömmu afmælisdagur er liðinn.  Skemmtilegt að hafa svona hefðir Glottandi.
Nú er allt að komast í fastar skorður eftir hátíðarnar, allir komnir á fullt í vinnu og skóla. 
Ég ætla að láta þetta duga í bili, er að fara úr húsi, ætla að hitta 3 skemmtilegar kellur á kaffihúsi, ein hefðin sem hefur skapast, erum búnar að gera þetta reglulega í nokkur ár, hittumst alltaf á sama kaffihúsinu og á sama tíma, gott að eiga góða vini Koss.
Meira síðar, fariði vel með ykkur,
SA

Sigrún Arna Hafsteinsdóttir
4 athugasemdir

Fyrsti föstudagur nýs árs

05. janúar 2008 klukkan 01:33
Já ég vona að það hafi ekki farið fram hjá mörgum að nýtt ár er runnið upp, elsku vinir til sjávar og sveita; gleðilegt ár, hjartans þakkir fyrir það gamla. 
Ég held ég sé ekkert að því að vera með neinn annál hérna, mér finnst ekki taka því að endurtaka sjálfa mig.  Eins og þið vitið sem fylgist með mér og mínum, var síðasta ár ansi viðburðaríkt hjá okkur, svo ekki sé meira sagt.
Ég talaði um það í síðasta bloggi að við hefðum brunað í Borgarfjörðinn, fórum fjölskyldan eins og hún lagði sig á jeppanum með kerrum með tveimur snjósleðum.  Eins gott að nota þennan snjó þegar, þá sjaldan hann lætur sjá sig hér á landi Hlæjandi.  Það var notalegt að hitta Lullu og co, alltaf gaman að koma til þeirra og njóta gestrisni þeirra Koss.
Áramótin voru hefðbundin hjá okkur, menn voru gjörsamlega að tapa sér í fýrverkinu, og þá aðallega yngsti drengurinn á heimilinu.  Hann byrjaði í haust að safna sér fyrir flugeldum og var því kominn með dágóðan sjóð þegar þeir feðgar fóru að versla flugeldana Gráðugur
Mér fannst skaupið ferlega skemmtilegt en það eru nú auðvitað skiptar skoðanir um það eins og endranær, hvernig væri þetta ef allir væru sammála um skaupið?  Sérstök menning; þetta áramótaskaup okkar Glottandi.

Meira síðar,
njótið lífsins,
SA
Sigrún Arna Hafsteinsdóttir
2 athugasemdir

28. desember 2007

28. desember 2007 klukkan 13:01
Gleðileg jól, kæru vinir og ættingjar til sjávar og sveita. 
Já þá er þetta árið að renna sitt skeið á enda, ekkert smá viðburðaríkt.

Við höfum notið hátíðarinnar eins og lög gera ráð fyrir, verið aðeins á ferðinni og líka notið nærveru hvers annars hér heima við. 
Aðfangadagur var tekinn snemma, við brunuðum í kirkjugarðinn og vorum svo búin að skila Hafsteini Helga og Guðbjarti Geira í vinnuna fyrir klukkan 11 en þeir voru að vinna til klukkan 3.  Síðan tóku hefðbundin aðfangadagsverk við, reyndar eitt óvenjulegt en Trausti kom á aðfangadag í stað Þorláksmessu að klæða rjúpurnar úr hvítu kápunum.  Rjúpurnar smökkuðust vel að vanda, Guðbjartur Geiri fékk möndluna og fékk í verðlaun spilið Bíóbrot.  Það gekk vel að opna pakkana Glottandi og úr þeim kom margt fallegt að vanda.  Pabbi, Magga og Kristján  kíktu svo í kaffi að vanda, alltaf skemmtilegt að hittast svona á aðfangadagskvöld (vanda hvað!! Vanda, vanda, gættu þinna handa???? Ullandi)
Á jóladag var jólaboð hjá Gretars familíu og var það í þetta sinn haldið hjá Sigrúnu og Birnu.  Við skiptumst á að halda boðið og kemur það mjög vel út.  Þar var auðvitað etið og spjallað og etið og hlegið og glímt við gestaþrautir og etið. 
Annan dag jóla vorum við nú hérna heima við, nutum þess að slaka á; reyndar var Guðbjartur Geiri að vinna frá kl. 12-16.
Í gær skruppum við svo í Borgarfjörðinn en meira frá því síðar.

Njótiði hvers annars,
knús SA.

P.s. Í dag er fæðingardagur hennar móður minnar heitinnar, góður dagur þetta!
Sigrún Arna Hafsteinsdóttir
1 athugasemd

16. desember

16. desember 2007 klukkan 15:52
Ja ekki er veðrið nú beint jólalegt í dag; hávaðarok og grenjandi rigning.  Þetta er svona svipað og hefur verið síðustu daga og kannski ættum við bara að fara að kalla þetta veður jólalegt eða hvað?  Mér finnst bara svo notalegt að hafa snjóinn yfir öllu, hvítan og hreinan Brosandi.
Það hefur náttúrulega heilmargt gerst síðan síðast.  Við gamla settið erum búin að fara á tvö jólahlaðborð í viðbót; eitt með minni vinnu og svo annað sem Olís bauð á (Olís á Ellingsen).  Það sem mér finnst nú hvað skemmtilegast við þessi hlaðborð, fyrir utan að gleðjast með skemmtilegu fólki, er hvað þau voru ólík, hvert með sínu sniði, þetta er svo skemmtilegt Hlæjandi.
Stóru drengirnir mínir kláruðu prófin sín 6. og 7. des og stóðu sig líka svona ljómandi vel Koss.  Núna vinna þeir og vinna, verða meira að segja að vinna á aðfangadag frá kl. 11-15.  Það er fínt fyrir þá að geta safnað sér smá pening. 
Róbert fór nú ekkert í skólann síðasta föstudag, enda hafði lögreglan beðið fólk að halda börnunum heima.  Hann og Guðrún vinkona hans (mamma hennar keyrði hana til okkar) notuðu tímann á föstudaginn og bökuðu þessa líka yndælis skúffuköku Hlæjandi.

Jæja, fariði varlega í jólastressinu, reynið að anda aðventunni vel að ykkur og njóta hennar í botn.

Meira síðar,
knús,
SA jólakelling.
Sigrún Arna Hafsteinsdóttir
Engin athugasemd

Föstudagur

23. nóvember 2007 klukkan 21:31
Heil og sæl Glottandi.
Síðasta helgi var nú aldeilis viðburðarík hjá okkur gamla settinu, við fórum með vinnunni hans Gretars (eða réttarasagt starfsfólkinu þar Hlæjandi) á Hvolsvöll  og gistum á hótelinu þar 2 nætur.  Á föstudagskvöldinu var boðið uppá villibráðarhlaðborð og á laudagdagskvöldinu var síðan jólahlaðborð.  Svo ég geri nú langa sögu stutta þá var maturinn frábær Brosandi.  Um hádegið á laugardag fór hópurinn í rútuferð um Njáluslóðir, með frábærum fararstjóra sem AÐEINS hefur lesið Njálu u.þ.b. 400 sinnum, takk fyrir góða kvöldið Svalur.  Eftir rútuferðina skoðuðum við síðan Njálusafnið (ég er ekki viss um að ég fari alveg rétt með nafnið) og skoðuðum það.  Þar voru fleiri sýningar í gangi, meðal annars kaupfélagssýning, ferlega skemmtilegt að sjá ýmsar græjur og annað sem notað var í "gamla daga".  Þess má reyndar geta að ég notaði reiknivélar og svona búðarkassa sem voru þarna þegar ég vann í búð og á fleiri stöðum, enda fæddist ég í gamla daga Ullandi.
Á leiðinni í bæinn komum við við í Grímsnesinu og síðan í Hveragerði hjá Þóru Siggu, en hún varð fertug þann 13. þessa mánaðar og að sjálfsögðu fórum við ekki svöng þaðan frekar en vanalega, þvílíkar veitingar Hlæjandi.

Skemmtileg helgi!

Meira síðar,
SA
Sigrún Arna Hafsteinsdóttir
2 athugasemdir

Bráðum koma..........

09. nóvember 2007 klukkan 17:11
........blessuð jólin Glottandi
Já það er ekkert svo svakalega langt í þau, og ég auðvitað farin að hlakka til. Byrjuð að undirbúa jólakortin, búin að kaupa rétt rúmlega 3 jólagjafir og farin að hugsa um baksturinn og hvernig maður eigi að haga honum, já þessi undirbúningur er mjög spennandi.
Drengjunum mínum gengur vel í skólunum sínum og okkur foreldrunum í vinnunum okkar.  Gretar byrjaði í október að vinna í Ellingsen, í veiðideildinni og finnst það sko ekki leiðinlegt, ekki slæmt það að geta unnið við áhugamálið Svalur.  Mér finnst alltaf skemmtilegra og skemmtilegra í minni vinnu; ekki var það nú leiðinlegt í byjun þannig að ég spyr nú bara: hvar endar þetta Hlæjandi.
Ég má til með að segja ykkur frá því að ég fór á skyggnilýsingafund núna á miðvikudagskvöldið og vá!  Ferlega skemmtilegt alveg hreint og fullt kom fram sem mikið vit er í.  Ég fór með tveimur góðum vinkonum mínum og hjá þeim kom líka ýmislegt fram sem ég veit að er rétt Glottandi.

Jæja, gangið á Guðs vegum og njótið helgarinnar.

Meira síðar, SA
Sigrún Arna Hafsteinsdóttir
3 athugasemdir

Sunnudagur

30. september 2007 klukkan 23:24
Ja hérna hér!
Smá blogg til að sýna að ég er enn á lífi Brosandi.
Það er töluvert síðan minn heittelskaði eiginmaður kom heim úr útlegðinni, hann byrjar trúlega á næstu dögum í nýrri vinnu.  Hann er búinn að vera að dytta að ýmsu hér heima og að njóta þess að vera í fríi. 
Fyrir helgina var keyptur á heimilið nýr ísskápur, tvöfalt amerískt skrímsli sem allir meðlimir fjölskyldunnar eru yfir sig ánægðir með.  Það gekk nú ekki alveg þrautalaust að koma skrímslinu inn fyrir hússins dyr, því Gretar þurfti að taka útihurðina af hjörum og millihurðina líka Glottandi.  Áður var hann búinn að taka búrskápinn í burtu, en í dag fórum við í Ikea og keyptum okkur hillur og körfur þar sem við getum geymt það sem var í búrskápnum áður og kemur þetta bara ljómandi vel út.
Skólar og vinna ganga vel og er alltaf jafn skemmtilegt og mikil fjölbreytni í gangi.
Í kvöld fengum við góða gesti, þau Ásdís Sigurjóns, Aðalsteinn og Signý heiðruðu okkur með nærveru sinni, takk fyrir komuna elskurnar Koss.  Alltaf gaman að fá góða gesti.

Meira síðar, passiði ykkur á vitlausa veðrinu sem er víst spáð!
SA
Sigrún Arna Hafsteinsdóttir
1 athugasemd

Búin að landa Maríulaxinum og gott betur!

02. september 2007 klukkan 23:05

Mín komst nú aldeilis í feitt um helgina, veiðiverðinum og frúnni hans var boðið í veiði og skundaði ég í Borgarfjörðinn í gær.  Við hjónin græjuðum okkur og fórum að ánni.  Til að gera langa sögu stutta varð afrakstur þessarar veiðiferðar okkar fjórir laxar, ég fékk þrjá og eiginmaðurinn einn Svalur.  Reyndar verð ég að taka það fram að takmarkið var að ég fengi fisk í þessari ferð, þannig að það var einblínt á það.  Ég sleppti einum laxi af því að hann var 71 cm en öllum laxi yfir 70 cm á að sleppa.  Um kvöldið fengum við dýrirndis máltíð í veiðihúsinu, sjávarréttarsúpu í forrétt og hreindýramedalíur í aðalrétt.  Þegar gestir höfðu lokið við aðalréttinn kom kokkurinn með Maríulaxinn minn og ég skildi vessgú gleypa veiðiuggann, reyndar var aðeins búið að losa um hann þannig að ég þurfti ekki að eyða löngum tíma í að naga hann af.  Með þessu fékk ég svo sneið af Lime og staup af Jagermeister þannig að þetta varð alls ekkert svo slæmt Glottandi.  Við hjónakornin fórum svo aftur út í morgun en fengum engan fisk, enda var ég alveg hæstánægð með mína þrjá og það getur bara vel verið að eiginmaðurinn þurfi ekkert að suða mjög mikið í mér að koma með honum í veiði Hlæjandi.

Meira síða, SA "ekta" veiðimaður Svalur

Sigrún Arna Hafsteinsdóttir
4 athugasemdir